Hjól atvinnulífsins

Eins og allir vita þá eru öll hjól atvinnulífsins loftlaus um þessar mundir, ekki síst vegna ófrágenginnar niðurstöðu í Icesave. Nú þegar á að fara að pumpa lofti í dekkin þá kemur stjórnarandstaðan í veg fyrir það.

Hver er tilgangurinn með því? Er stjórnarandstaðan ekki sammála að fá niðurstöðu í Icesave málinu? Af eða á?

Þessi vinnubrögð minna mig frekar á grunnskólanemendur en ábyrga þingmenn.


mbl.is Icesave ekki á dagskrá í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Eitthvað eru menn hræddir fyrst þeir vilja ekki ræða Icesave. Þeir eru kannski í ímyndarvinnu við að leita uppi ný slagorð og upphrópanir! Hver veit?

Ingibjörg Hinriksdóttir, 20.10.2009 kl. 16:33

2 identicon

Ríkisstjórnin hefur nú staðið sig ágætlega í því að drepa niður allt atvinnulíf í þessu landi! Suðvesturlínan, álver á Bakka, gangaverin svo ekki séu nefndar ENGAR aðgerðir til bjargar atvinnufyrirtækjunum, bullandi háir stýrivextir og aukin skattheimta....

Óskandi að þessi Icesavevagn sem bera mun okkur öll beint í þrælakistuna komist aldrei í gang og öllum dekkjum verði stolið!

Við viljum öll niðurstöðu en þessi niðurstaða er ömurleg enda virðast íslensk stjórnvöld ekki hafa staðið í lappirnar og með þjóð sinni. Þeir hafa ekki barist fyrir hagsmunum Íslendinga og eiginlega hálfskömmuðust sín fyrir að kynna fyrirvarana sem Alþingi setti í sumar fyrir viðsemjendum sínum! Hljómar þetta eins og lýðræði?Er nema von að við stöndum uppi með lélegan samning? Samning sem kveður á um að öll upphæðin verði greidd upp til fulls, samning sem  segir að vextir verði greiddir að fullu á endurgreiðslutímanum óháð hagvexti, samning sem felur í sér að Bretar og Hollendingar geti gengið að fyrirtækjum í eigu íslenska ríkisins sem gætu orðið ansi mörg þegar bankarnir hafa yfirtekið meirihlutann. 

Eigum við ekki að óska þess að einhverjir stjórnarliðar gangi í lið með stjórnarandstöðunni og skeri á dekkin?

SÓ (IP-tala skráð) 20.10.2009 kl. 16:59

3 Smámynd: Sigurður Haukur Gíslason

SÓ! Ef ég skil þig rétt þá viltu frekar að þingmenn rífist fram eftir vetri um Icesave heldur en að fá niðurstöðu í málið.  Að hjól atvinnulífsins verði áfram loftlaus.

Þetta finnst mér nú ekki ábyrg afstaða.

Sigurður Haukur Gíslason, 20.10.2009 kl. 17:52

4 identicon

Ég held að SÓ vilji bara heiðarlega ríkisstjórn sem að hugsar um Íslendinga en ekki einhverja erlenda og nokkra íslenska auðmenn.

Geir (IP-tala skráð) 20.10.2009 kl. 18:24

5 Smámynd: Sigurður Haukur Gíslason

Geir! Fáum við betri ríkisstjórn með því að draga Icesave málið út í hið óendanlega?

Sigurður Haukur Gíslason, 20.10.2009 kl. 22:03

6 identicon

Sammála, þurfum niðurstöðu.  Höfnum samningum segjum Bretum og Hollendingum að éta það sem úti frýs og látum dómstóla skera um þetta.

Baldur (IP-tala skráð) 20.10.2009 kl. 23:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband